S4S var stofnað árið 2009 og hefur síðan þá stækkað hratt og er í dag eitt stærsta smásölu fyrirtæki landsins. S4S stendur fyrir “Skref fyrir skref” sem lýsir þróun fyrirtækisins í gegnum árin mjög vel.
Undir S4S eru 14 verslanir og 4 netverslanir. Við reynum að vera framarlega í tækninýjungum og þróun, með þarfir viðskiptavina í forgangi.
Verslunin AIR opnaði í maí 2014 í Smáralind og ágúst 2017 í Kringlunni. AIR býður upp á heitustu vörurnar frá Nike hverju sinni, en þar er mikið úrval af bæði fatnaði og skóm.
Ecco verslanirnar bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval fyrir alla fjölskylduna. Ecco var stofnað árið 1963 og er gríðarlega vinsælt vörumerki sem hefur getið sér gott orð um allan heim fyrir flotta hönnun, en umfram allt gæði. Hjá ecco eru gæði og þægindi höfð að leiðarljósi.
Verslunin Kaupfélagið var opnuð í Kringlunni árið 2005 en strax árið 2006 var önnur Kaupfélags verslun opnuð í Smáralind, vegna mikillar eftirspurnar. Kaupfélagið sérhæfir sig í fallegum og vönduðum skófatnaði fyrir dömur og herra á öllum aldri.
Skechers búðin opnaði í mars 2016 og býður upp á mikið og fjölbreytt úrval af skóm fyrir alla fjölskylduna. Skechers var stofnað í Bandaríkjunum árið 1992 og er með verslanir í yfir 100 löndum allstaðar í heiminum.
Verslun Steinars Waage var stofnuð árið 1957 og allt frá þeim tíma hefur hún getið sér gott orð sem skóverslun fyrir alla fjölskylduna. Steinar Waage býður upp á breitt úrval af vönduðum vörumerkjum fyrir konur og karla á öllum aldri.
Netverslun S4S opnaði í október 2011 og býður upp á vörur sem fást hverju sinni í verslunum okkar; Air, Ecco, Kaupfélaginu, Skechers, Steinari Waage og Ellingsen. Verslaðu allan sólarhringinn og fáðu sent hvert á land sem er!
Ellingsen er ævintýraverslun fjölskyldunnar! Þar er eitt mesta úrval landsins af vörum fyrir hefðbundna útivist fyrir alla fjölskylduna. Í versluninni fæst einnig allt fyrir útileguna og þá er Rafhjólasetrið með eitt mesta úrval landsins af rafhjólum frá vönduðum framleiðendum.
Þann 26. október 2023 opnaði S4S stórt Premium Outlet í Holtagörðum.
Ellingsen og Air saman í einni verslun.