Skilmálar

Ellingsen netverslun selur fatnað, skó, útivistarvörur, útileguvörur og reiðhjól fyrir börn, dömur og herra.

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur og bjóðum við upp á fría heimsendingu á öllum pöntunum innanlands.

Pantanir eru sendar samdægurs/þarnæsta virka dag með akstri frá Dropp sem keyrir út sendingar milli klukkan 17:00 og 22:00 virka daga á höfuðborgarsvæðinu. Íslandspóstur sendir heim utan höfðuborgarsvæðisins og einnig er hægt að sækja á pósthús, í póstbox eða sækja pantanir til okkar á einn af eftirtöldum stöðum: 

  • Guðríðarstíg 6-8, 113 Reykjavík.
  • Skechers Kringlunni
  • Skechers Smáralind
  • Ellingsen Fiskislóð

Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Ellingsen netverslun.

Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla

Það tekur í flestum tilvikum 2-4 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru ekki sendar út um helgar.
 

Upplýsingar um seljanda:

Seljandi er S4S ehf., kt. 600509-0710, Guðríðarstíg 6-8, 113 Reykjavík. 
 
Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.
 
Greiðslumöguleikar
Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í netverslun Ellingsen.
Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Eurocard/Mastercard eða Amex.
Netverslun Ellingsen notar örugga greiðslugátt frá Borgun á Íslandi.
 
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
• Varan skal vera ónotuð.
• Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
• Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum.
• Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
• 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Endursenda má vöru til Ellingsen að Fiskislóð 1, 101 Reykjavík eða skila henni í verslun okkar í Reykjavík eða Tryggvabraut 1-3 Akureyri.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
 
Senda beiðni fyrir skil á vöru

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.ellingsen.is eru eign Ellingsen ehf. Og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Ellingsen ehf. Ellingsen er skráð vörumerki í eigu Ellingsen ehf. Og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Ellingsen ehf.
 
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
 

Hafa samband

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið netverslun@ellingsen.is eða í síma 580-8500 ef einhverjar spurningar vakna.