C-2000033762
Coleman
Coleman Mackenzie 6 tjald
169.995 Kr
Mjög rúmgott tjald fyrir sex með 3 herbergjum, þar sem hægt er að stækka tvö þeirra í eitt stórt. Alrými með góðri lofthæð. Coleman tjöldin eru frábær fyrir íslenskar aðstæður. Þau eru sterkbyggð, vatnsheld gæðatjöld og eru öll búin sérstakri Blackout Bedroom filmu sem útilokar 99% af sólarljósi inn í svefnrými sem hjálpar til við að ná lengri og betri svefni á björtum, íslenskum sumarnóttum. UV-Guard tæknin í filmunni veitir SPF50 sólarvörn sem hjálpar jafnframt við hitatemprun inni í tjaldinu, þannig að ekki verði molla í morgunsólinni og einnig er hlýrra í kulda heldur en í öðrum tjöldum. Coleman tjöldin eru þau einu á markaðnum með þessa filmu. Þá eru öll tjöldin með high performance flugnaneti sem heldur jafnvel minnstu flugunum frá, sem er hentugt á svæðum þar sem lúsmý er að finna. Í stærri tjöldunum frá Coleman er gert ráð fyrir rafmagnssnúrum og ljósum.
- Svefnpláss: 6.
- Herbergi: 3.
- Uppsetning: Pitch-in-one
- Stangir úr stáli
- Efni: Polyester efni sem andar vel
- Límdir saumar
- Pökkunarstærð: 80 x 40 x 40 cm
- Þyngd: 35.5 kg
- Vatnsheldni: 4500 mm
- Stærð: 18.9 m2 (svefnálma 8.8 m2, fortjald 10.1 m2)